Heilsustyrkir

Sjóðfélagar öðlast rétt til úthlutunar úr Styrktarsjóði BSRB eftir 6 eða 12 mánaða iðgjaldagreiðslur. 

Þú verður að fara í innskráningu hér að ofan til að sækja um styrk.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk, að hámarki 35.000 kr., á 12 mánaða fresti samkvæmt reikningi frá eftirtöldum aðilum: Líkamsræktarstöðvum, sundstöðum, skíðastöðum eða íþróttafélagi. Einnig heilsurækt sem telst sambærileg að dómi sjóðstjórnar. Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna kaupa á gatakortum eða gjafakortum.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum getur sótt um styrk til sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar, nálastungumeðferðar eða hnykklækninga (kiropraktor), 40% af reikningi að hámarki 42.000 kr. á ári.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum getur sótt um styrk til til sjúkranudds, 40% af reikningi að hámarki 62.000 kr. á ári. Reikningar mega ekki vera eldri en árs gamlir þegar sótt er um styrkinn.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sálfræðingi. Greiddur er helmingur reiknings (þess hluta sem sjóðfélaginn greiðir), þó að hámarki 80.000 kr. á ári. 

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk til meðferðar hjá heilsustofnunum NLFÍ eða eftirmeðferðar vegna áfengis og/eða vímuefnameðferðar á viðurkenndri meðferðarstofnun innanlands. Greiddar eru 3.750 kr. á dag fyrir allt að 28 daga á 12 mánaða tímabili, þó aldrei að hærri upphæð en reikningur vegna viðkomandi meðferðar nemur.

To top