Sjúkradagpeningar
- Sjóðurinn greiðir bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum eftir því sem nánar er mælt fyrir í þessum reglum. Sjóðurinn styrkir einnig fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum sbr. lið 5.
- Rétt til dagpeninga eða styrks úr sjóðnum eiga þeir sem aðild eiga að sjóðnum og njóta veikindaréttar samkvæmt gr. 2.2.1 í samkomulagi BSRB um veikindarétt enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn a.m.k. 6 mánuði fyrir styrkveitingu.
- Dagpeningar greiðast úr sjóðnum með eftirfarandi hætti:
- Dagpeningar greiðast frá þeim tíma sem samnings-/lögbundinni launagreiðslu frá atvinnurekanda lýkur.
- Upphæð dagpeninga skal vera 80% af meðal heildarlaunum síðustu 12 mánuði. Sé starfstími skemmri skal miðað við meðaltal launa þann tíma.
- Heimilt er að greiða dagpeninga hlutfallslega ef sjóðfélagi getur ekki vegna veikinda unnið fulla vinnu samkvæmt læknisráði.
- Heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 60 daga vegna langvarandi veikinda maka eða barna sjóðfélaga enda missi hann launatekjur vegna þeirra. Sjóðfélagi skal þó hafa náð eins árs sjóðsaðild til að njóta þessarar heimildar.
- Réttur sjóðfélaga til dagpeninga á hverjum 12 mánuðum er:
- Starfstími 6 til 12 mánuðir, 45 dagar.*
- Starfstími lengri en 12 mánuðir, 90 dagar, þó þannig að samanlagt greiðslutímabil vinnuveitanda og sjóðsins verði aldrei lengra en 360 dagar. Þá er heimilt að greiða dagpeninga í allt að 30 daga til þeirra sem hafa lokið 360 daga veikindarétti hjá launagreiðanda.*
*Sé sjóðfélagi í endurhæfingu eða á bið eftir endurhæfingu er réttur til sjúkradagpeninga 30 dagar.
Þegar sótt er um sjúkradagpeninga þurfa eftirfarandi gögn að fylgja umsókn:
1. Vottorð launagreiðanda um veikindi Vottorð launagreiðanda
2. Læknisvottorð sem staðfestir óvinnufærni á því tímabili sem sótt er um sjúkradagpeninga.
Til að sækja um sjúkradagpeninga þarf að fylla út umsókn með rafrænum skilríkjum á Mínum síðum á heimasíðu sjóðsins. Mikilvægt er að skila umsókn ásamt fylgiskjölum í síðasta lagi 20. þess mánaðar sem veikindaréttur klárast og hafa samband við sjóðinn eftir að umsókn er send, í síma 525-8380 eða í gegnum netfangið postur@klettursjodur.is.
Dagpeningar greiðast ekki lengur en ráðningu starfsmanns er ætlað að standa. Því er mikilvægt að segja ekki upp starfinu í veikindaleyfi.
Áframhaldandi óvinnufærni
Sé sjóðfélagi enn óvinnufær eftir að launagreiðslum atvinnurekanda og sjúkradagpeningagreiðslum frá Styrktarsjóðnum Kletti lýkur, bendum við á að e.t.v. er réttur til frekari greiðslna frá einhverjum eftirfarandi aðila. Fyrsta skref er að sjóðfélagi ræði við sinn lækni um áframhaldið.
Tryggingastofnun ríkisins (TR)
- Einstaklingar sem eru í endurhæfingu eða meðferð sem tekur á langvarandi eða alvarlegum heilsubresti eða fötlun, sem og einstaklingar sem bíða eftir að meðferð eða endurhæfing hefjist, geta sótt um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hjá TR.
- Sótt er um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í gegnum Mínar síður TR. Eftirfarandi gögn þurfa að liggja fyrir; það er umsókn, tekjuáætlun, læknisvottorð, staðfesting eða endurhæfingaráætlun. Ef við á þarf að skila inn hvenær sjúkrasjóðsréttindum hjá stéttarfélagi lýkur/lauk.
- Sé maki eða barn veikt getur einstaklingur átt rétt til maka- og ummönnunarbóta eða foreldragreiðslna.
- Nánari upplýsingar má nálgast hér: Nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur | Ísland.is
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ)
- Sjúkratryggingar greiðs sjúkradagpeninga til þeirra sem eru algjörlega óvinnufærir vegna eigin veikinda eða slysa.
- Sjúkradagpeningar SÍ eru lægri en lágmarkslaun en einstaklingur getur einnig sótt um sjúkradagpeninga frá stéttarfélagi.
- Sjúkradagpeningar SÍ eru greiddir vegna eigin veikinda eða slysa í frístundum, heimafæðingar og áfengis- og vímuefnameðferðar.
- Sjúkradagpeningar SÍ greiðast ekki með sjúkra- og endurhæfingargreiðslum og stöðvast greiðslur sjálfkrafa er endurhæfing hefst hjá TR.
- Nánari upplýsingar má nálgast hér: Sjúkradagpeningar | Sjúkratryggingar
Lífeyrissjóðir
Einstaklingar geta átt rétt á örorku- og endurhæfingarlífeyri frá lífeyrissjóðum, en reglur þeirra eru misjafnar.
Sveitarfélög
Einstaklingar geta átt rétt á fjárhagsaðstoð félagsþjónustu sveitarfélags síns.
Bætur til þolenda afbrota
Einstaklingar geta átt rétt á bótum úr ríkissjóði vegna líkamsárása og miska. Ef óvinnufærni er eftir líkamsárás má nálgast nánari upplýsingar hér: Bætur til þolenda afbrota | Ísland.is
Starfsendurhæfingarsjóður VIRK
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku og virkni á vinnumarkaði.
Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings.
Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu VIRK þarf að byrja á að panta tíma hjá lækni og ræða við hann hvort starfsendurhæfing hjá VIRK sé raunhæfur kostur. Sjá nánar um starfsendurhæfingarferilinn.
Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignastofnun með aðild allra helstu samtaka stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði. Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna langvarandi veikinda eða slysa. Áhersla er lögð á að koma snemma að málum og viðhalda vinnusambandi einstaklinga með virkni og öðrum úrræðum.
Innan BSRB starfa ráðgjafar á vegumstarfsendurhæfingarsjóðs Virk sem hafa það hlutverk að aðstoða fólk við að finna leiðir og lausnir vegna endurkomu til vinnu:
Elín M. Erlingsdóttir, ráðgjafi hjá VIRK
Björk Ólafsdóttir, ráðgjafi hjá VIRK
Karen Björnsdóttir, ráðgjafi hjá VIRK
Sólveig Dögg Alfreðsdóttir, ráðgjafi hjá VIRK
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu VIRK: