Annað

Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá reglum sjóðsins og veita styrk vegna sérstakra aðstæðna sem hafa í för með sér launamissi eða veruleg fjárútlát sjóðfélaga vegna veikinda hans sjálfs eða nánustu fjölskyldu.

Vinsamlegast hafið samband við styrktarsjóðinn í síma 525-8380 eða með því að senda tölvupóst á netfangið postur@klettursjodur.is fyrir nánari upplýsingar.

Sjóðurinn tekur þátt í ferðakostnaði sjóðfélaga sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði vegna þeirra sjálfra, maka þeirra og barna, enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn í síðustu 12 mánuði. Sækja verður um styrk til Sjúkratryggingatrygginga Íslands.

Sé þeirri beiðni hafnað greiðir sjóðurinn:

10.000 kr. fyrir 250 – 400 km akstur

15.000 kr. fyrir 400 – 600 km akstur

20.000 kr. fyrir 600 – 800 km akstur

25.000 kr. fyrir 800 km akstur eða meira.

Miðað er við ferðalag fram og til baka. Greitt verður að hámarki fyrir þrjár ferðir á hverju 12 mánaða tímabili. Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá þessum viðmiðunum ef fyrir því liggja ríkar ástæður.

Umsókn þarf að fylgja:

  1. synjunarbréf frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ)
  2. staðfestingu á komu til læknis/á heilbrigðisstofnun

Dánarbætur eiga einungis við þá sem voru í félögum sem aðilar eru að sjóðnum. 

  1. Greiddur er 300.000 kr. styrkur vegna andláts þeirra sjóðfélaga sem verið í ráðningarsambandi a.m.k. 12 mánuði samfellt fyrir andlát.
  2. Greiddur er 200.000 kr. styrkur vegna andláts fyrrverandi sjóðfélaga sem látið hafa af störfum og farið á ellilífeyri eða örorkulífeyri á síðustu 5 árum og voru sjóðfélagar síðustu 12 mánuði samfellt fyrir starfslok.
  3. Greiddur er 200.000 kr. styrkur vegna andláts barna sjóðfélaga, 18 ára og yngri.

Vinsamlegast hafið samband við styrktarsjóðinn í síma 525-8380 eða með því að senda tölvupóst á netfangið postur@klettursjodur.is fyrir frekari upplýsingar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk til ættleiðingar barns að upphæð 200.000 kr., í eitt skipti.

Vinsamlegast hafið samband við styrktarsjóðinn í síma 525-8380 eða með því að senda tölvupóst á netfangið postur@klettursjodur.is fyrir frekari upplýsingar.

Sjóðfélagi sem er virkur félagi í sjóðnum og hefur verið starfandi samfellt síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns, og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs, getur sótt um fæðingarstyrk. Við útreikning upphæðar er miðað við greidd iðgjöld í sjóðinn síðustu 12 mánuði, ef iðgjaldaupphæð nær 45.000 kr. er styrkurinn 240.000 kr. Nái iðgjaldaupphæðin ekki þessu marki lækkar styrkurinn hlutfallslega miðað við inngreidd iðgjöld. 

Staðgreiðsluskattur er tekinn af fæðingarstyrkjum.

ATH að til að fá fæðingarstyrk þarf að skila inn fæðingarvottorði barns frá Þjóðskrá Íslands.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk til glasa- og/eða tæknifrjóvgunar allt að 150.000 kr. á hverjum 24 mánuðum.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

To top