Aðrir styrkir

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum getur sótt um styrk til krabbameinsleitar og krabbameinsskimunar að hámarki 20.000 kr. á ári.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem er virkur í starfi, með iðgjöld greidd í þeim mánuði þegar sótt er um styrk, og 6 mánaða samfellda aðild getur sótt um styrk til skoðunar vegna hjartaverndar að hámarki 20.000 kr. á ári.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk til gleraugnakaupa/linsukaupa einu sinni á hverjum 36 mánuðum. Styrkurinn nemur 30% af kostnaði sem fer umfram 10.000 kr. Styrkur til gleraugnakaupa/linsukaupa getur þó ekki orðið hærri en 40.000 kr.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk vegna kaupa á heyrnartækjum. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr., þó að hámarki 150.000 kr. Styrkurinn miðast við kaup á tveimur tækjum á 36 mánaða tímabili.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk til sjónlagsaðgerðar/augasteinsaðgerða á öðru auga 50.000 kr. eða 100.000 kr. fyrir bæði augu.

Til að umsóknir séu afgreiddar þarf að skila inn afriti af löggildri greiðslukvittun þar sem fram koma upplýsingar um þjónustuveitanda, meðferðardagsetningar/dags. reiknings, nafn og kennitala umsækjanda, upphæð og að vara/þjónusta sé greidd. Vinsamlegast athugið að greiðslukvittanir og/eða meðferðardagsetningar mega ekki vera eldri en eins árs við innsendingu umsóknar.

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum getur sótt um styrk vegna tannlæknakostnaðar. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr. á 24 mánaða tímabili, þó að hámarki 110.000 kr. Réttur til styrkja stofnast ekki aftur fyrr en 12 mánuðir eru liðnir frá því að 24 mánaða tímabilinu lýkur. Hægt er að sækja um styrkinn oftar en einu sinni á 24 mánaða tímabili.

To top